inner
   
Saga skólans
 
 

Úr sögu skólans

Ballettskóli Guðbjargar Björgvins var stofnaður árið 1982. Stefna skólans frá upphafi hefur verið kennsla í klassískum ballett auk nútímaballetts, jazz og þjóðdönsum frá ýmsum löndum til kynningar á ólíkum tegundum dansins.  

Kennt er eftir kennslukerfi frá Royal Academy of Dancing, Vaganovu tækni og kerfi sem skólinn hefur hannað í gegnum árin sérstaklega fyrir yngri  nemendur.  Einnig er sérstök deild innan skólans í jazz- og hipp-hopp dansi auk þess sem öllum nemendum frá 9 ára aldri er boðið að sækja þessa tíma aukalega samhliða ballettnáminu.   

Aðalkennari skólans er Guðbjörg Björgvinsdóttir en auk þess starfa við skólann þrír aðrir kennarar auk aðstoðarfólks.

Aðstaðan

Skólinn flutti í nýtt, sérhannað kennsluhúsnæði á Eiðistorgi fyrir þremur árum. Þar eru tveir kennslusalir af fullkomnustu gerð auk búningsaðstöðu og rúmgóðri aðstöðu fyrir nemendur og foreldra til að þess að bíða eftir kennslutímum.

 

 

 

 
 
     
 
inner
:: Home :: Site Map :: Privacy Policy :: Credits
©2004 School of Ballet - All Rights Reserved