inner
   
Nįmskeiš
 
 

Kennslan

Kennsluannirnar eru tvær auk sumarskóla.  Haustönn er 12 vikur, vorönn 12-14 vikur og sumarskóli 4 vikur.

Nemendur í skólanum eru frá þriggja ára aldri.  Öllum kennslutímum er skipt eftir aldri, þar sem þroski hvers árgangs fyrir sig er mismunandi, og þannig fær hver og einn nemandi að njóta sín.  Um 13 – 14 ára aldur fara nemendur að blandast meira, jafnframt sem tímafjöldi eykst.  Þannig læra þau yngri af þeim eldri og þau eldri læra af eldmóði hinna yngri og allir eru að stefna að sama marki, að ná sem mestum árangri.  

Forskóli (3 – 5 ára) – kennsla einu sinni í viku

Kennsla þeirra byggist upp á litlum sporum sem fléttuð eru inn í leiki, látbragð, leikdansa og börnin spinna upp ævintýri með búningum og hárskrauti.  

Forskóli (6 ára) – kennsla einu sinni í viku

Á þessum aldri fer kennslan að lengjast, samfara meiru ballettnámi.  Börnin læra handa og fótaæfingar auk samsetninga á litlum sporum.  Dansar verða erfiðari en stutt er í leikinn, látbragðið og spunann.  

Ballettskóli I (7 – 9 ára) – kennsla 2-3 sinnum í viku

Við 7 ára aldur hefst hin eiginlega ballettkennsla, rólega til að byrja með og þyngist eftir því sem börnin verða eldri.  Áhersla er lögð á liðkunar- og styrktaræfingar auk þjálfunar í jafnvægi.

Ballettskóli I (10 – 12 ára) – kennsla 2-3 sinnum í viku

Á þessum aldri byrjar kennsla á táskóm.  Æfingar verða erfiðari, tækni verður meiri og tímafjöldi eykst.  Nemendur halda áfram að byggja upp styrk.  Einnig er farið að raða saman flóknari sporum og jafnvægisæfingar auknar.  

Ballett II (13 ára og eldri) – kennsla 4-5 sinnum í viku

Enn bætast við nýjar æfingar, bæði við stöng og á gólfi.  Lengri og flóknari samsetningar auk mismunandi snúninga og stærri spor.  Lögð er áhersla á að skiptingar úr einni æfingu í aðra verði áreynsluminni og komi meira út sem dans.  Táskó vinna verður erfiðari og farið er að læra lítil sóló atriði í tímum.  

Ballett fyrir eldri - kennsla 2 sinnum í viku

Balletttímar fyrir þá sem voru einu sinni í ballett eða þá sem eiga eftir að láta drauminn rætast.

Jazz

Jazznám byggist upp á styrkingar- og liðkunaræfingum auk samsetning á sporum og dönsum.

Nemendasýningar

Nemendasýningar eru fastur liður í skólastarfinu.  Þær eru að jafnaði tvær á ári, fyrir jólafrí og að vori, í lok starfsársins.  Vorsýning skólans fer fram á stóra sviði Borgarleikhússins.  Þar koma allir  nemendur frá 4 ára aldri fram og þar höfum við sýnt úr mörgum perlum ballettsins, t.d. Svanavatninu, Þyrnirós, Coppeliu o.fl.  Þar er jazz deildin einnig með sína sýningu.  

Auk þess tekur skólinn þátt í ýmsum uppákomum, t.d. í kirkjum og menningarhátíðum.  Fyrir þessar uppákomur eykst tímafjöldi nemenda töluvert og eru allir aukatímar inni í gjaldskrá skólans.

Að lokum

Dans er mjög kröfuhörð listgrein sem krefst aga og ástundunar ef árangur á að nást.  Með skipulagðri uppbyggingu á kennslutímum og æfingum, kennslu í hlustun og túlkun á tónlist, sem er mjög mikilvæg, læra nemendur mikilvægi agaðra vinnubragða sem nýtist þeim við allt nám.

Innritun fer fram í síma 562-0091 og með tölvupósti á gbballett@simnet.is.

 
 
     
 
inner
:: Home :: Site Map :: Privacy Policy :: Credits
©2004 School of Ballet - All Rights Reserved